Dómur hversdagsleikans á frjálshyggjuna

 | Sunnudagur 26. febrúar 2006 | Engar aths

Hvað sem allri díalektík líður er hversdagslífið það sem við þurfum að þola dags daglega og þar sem búum við við stigveldisskipulag hafa ákvarðanir og duttlungar stjórnarmeirihlutans meiriháttar áhrif á hið daglega amstur. Ef hversdagslífið er bæði þolandi og dómari… lesa rest

Kæra þjóð, hafið þér fallið í gleymskunar dá?

 | Miðvikudagur 22. febrúar 2006 | Engar aths

Skoðanakönnun síðustu viku sýndi það að Framsóknarflokkurinn er að hverfa frá stjórnmálum á Íslandi.  Einnig sýndi sama könnun að Sjálfstæðisflokkurinn hefur sjaldan verið sterkari.  Hvers vegna ætli það sé?  Það hlýtur að vera vegna þess að flokkurinn hefur staðið sig… lesa rest

10 ástæður fyrir andstöðu við AGS (Inngangur)

 | Mánudagur 20. febrúar 2006 | 1 aths

Eftirfandi er stuttur kafli úr bókinni „10 Reasons to abolish the IMF & World Bank“ eftir Kevin Danaher.
Árið 1984 vorum við eiginkona mín, Medea Benjamin, stödd í Gvatemala til að taka rannsóknarviðtöl við konur bænda sem höfðu verið teknir… lesa rest

Vantar okkur fleiri fanatíkera?

 | Fimmtudagur 16. febrúar 2006 | Engar aths

Það er hægt að horfa á Ómega í Íran.  Kerfið þeirra er komið á einhvern ísraelskan gerfihnött og spannar allt frá Grænlandi til Kína.  Núna geta sakleysingjar sirka 70 landa látið féfletta sig og heilaþvo með lýðskrumi og andlegu rökleysisklámi.… lesa rest

Hvað er stéttarstaða og af hverju ræðst hún?

 | Þriðjudagur 14. febrúar 2006 | Engar aths

Fyrir viku skrifaði ég að „stéttarstaða ræðst ekki af breytni heldur … haldið ykkur nú … stéttarstöðu.“  Þetta orðalag var vanhugsað og ástæða til að láta það ekki standa óleiðrétt:
Stéttarstaða er mælikvarði á félagslega og efnahagslega stöðu manns í… lesa rest

Húsnæðismál á Íslandi

 | Mánudagur 13. febrúar 2006 | Engar aths

Hvað getum við sagt að séu grundvallarmannréttindi?  Eru grundvallarmannréttindi að eiga stóran jeppa,  plasmasjónvarp,  álver í hverjum firði og mcdonalds í næsta nágrenni?  Samkvæmt framsækinni nytjastefnu (PROUT)  eru grundvallarmannréttindi eftirfarandi:  Þar eru algjör lágmarksmannréttindi að fólk hafi föt,  mat, mannsæmandi atvinnu,… lesa rest

Stéttskipting og auðsskipulag

 | Fimmtudagur 9. febrúar 2006 | Engar aths

Á meðan einn þjóðfélagshópur hefur vald til að setja öðrum þjóðfélagshópi skilyrði fyrir afkomu sinni er gátt ógæfunnar opin.  Gátt stéttaskiptingarinnar.  Stéttaskiptingin felst í þessu valdi, að geta sett öðrum skilyrði fyrir afkomu sinni.  Það er annað mál, hvort einstakir… lesa rest

Líkt og ólíkt með Samfylkingunni og VG

 | Þriðjudagur 7. febrúar 2006 | Engar aths

Orðheppinn hægrimaður kallaði andstæðinga sína einhverju sinni pólitíska vindhana.  Þessi sniðuga einkunn finnst mér lýsa Samfylkingunni vel.  Ég held að stjórnmálahreyfing, sem leitast við að sameina jafn breitt pólitískt litróf og Samfylkingin, sé dæmd til að eiga í erfiðleikum með… lesa rest

Hvar skal byrja?

 | Mánudagur 6. febrúar 2006 | Engar aths

Hvað skal skrifa? Á hvaða sprengifima málefni skal maður trítla varlega á? Stóriðju? Kriztnitrú? Sinnuleysi og aumingjaskap? Eða bara byrja á einhverju auðveldu einsog Írakstríðið? Þó svo að landið innihaldi meiri nítrógliserín og mun meiri líkur eru á gífurlega öflugum… lesa rest

Hinar raunverulegu afætur

 | Miðvikudagur 1. febrúar 2006 | Engar aths

Frjálshyggjan kveður svo á að skatta beri að lækka þar sem þeir séu óréttlátir. Þetta á nærri eingöngu við um skatta sem ætlaðir eru til ráðstöfunar í hinu svokallaða velferðarkerfi, skattfé til löggæslu og annarra verndara eignarréttarins skal halda áfram að berast ríkinu. Samkvæmt áróðrinum sé ósanngjarnt að vinnandi fólk þurfi að borga stóran hluta af tekjum sínum til að halda uppi velferðarkerfinu. Þeir sem neyðast til að sækja björg til félagslega kerfisins, þeir sem þurfa læknishjálp, öryrkjar, þunglyndir, í raun allir þeir sem þurfa aðstoð eigi að sjá um sig sjálft og vinnandi fólk eigi ekki að borga undir það.