Vangaveltur á Andkristnihátíð

 | Laugardagur 22. desember 2007 | Engar aths

Anarkistinn Herbert Read skrifaði á þá leið að rökhyggja og gagnrýnin hugsun væri merki um hrun ráðandi trúarbragða.* Ég les texta Read þannig að hann greinir ekki einungis á milli trúar og trúarbragða heldur og á milli trúarbragða sem heimspekilegrar… lesa rest

Líbýumenn í írösku andspyrnunni…

 | Föstudagur 21. desember 2007 | Engar aths

Mbl.is greinir frá því að herskáum Líbýumönnum fari fjölgandi í Írak. Það er látið líta svo út í vestrænum fjölmiðlum, að andspyrnan í Írak samanstandi að miklu leyti af útlendingum, bókstafstrúarmönnum frá öðrum arabalöndum sem komi þangað gegnsýrðir af hatri… lesa rest

Eyvindur P. Eiríksson: Glass

 | Föstudagur 21. desember 2007 | Engar aths

Eyvindur P. Eiríksson dregur upp dökka mynd af framtíðinni í skáldsögu sinni Glass. Í óræðri framtíð, kannski þrjátíu ár héðan, er heimurinn kominn til andskotans. Sögusviðið er Ísland. Ísland, þar sem vitfirringin ríkir. Húsmóðirin lifir eftir grunnristum ráðum sálfræðinga um… lesa rest

Einvaldur vakir yfir lýðræði

 | Miðvikudagur 19. desember 2007 | Engar aths

Mannréttindavaktin (Human Rights Watch, HRW) harmar að Kasakstan skuli hafa hlotið forsæti Öryggis- og samvinnustofnunarinnar Evrópu (ÖSE) 2010 á ráðherrafundi hennar í Madrid 30. Nóvember sl. Vaktin telur að undir formennsku Kasakstans muni trúverðugleiki ÖSE skaðast. Holly Cartner, yfirmaður Evrópu-… lesa rest

NATÓ-ríkin samþykktu fangaflug

 | Miðvikudagur 19. desember 2007 | Engar aths

Á leynilegum NATÓ-fundi í Bruxelles þann 4. október 2001 samþykktu öll aðildarríki NATÓ að veita Bandaríkjastjórn og bandamönnum hennar opið leyfi til að fljúga um lofthelgi sína í tengslum við „stríð gegn hryðjuverkum“. Ísland var var eitt af þessum ríkjum. Síðan… lesa rest

Kartöflur í skó stóriðjustefnunnar

 | Þriðjudagur 18. desember 2007 | Engar aths

Hópur jólasveina kom ofan úr Hengli í fyrradag, syngjandi með gildan staf í hendi. Á leið sinni til byggða gengu þeir fram á framkvæmdir við Hellisheiðarvirkjun, og sem landvættum var þeim ekki skemmt vegna rasksins. Þeir komu sér fyrir á og undir… lesa rest

Hin gullna mjólkurkýr

 | Mánudagur 17. desember 2007 | Engar aths

Undanfarna mánuði hafa blossað upp umræður um hæpna viðskiptahætti „lágvöruverðsverslana“. Út úr því hefur ekkert komið nema það sem allir vissu að Bónus er oftast með lægsta verðið og Krónan krónu hærri – fyrir undarlega tilviljun. Forsvarsmenn þessara verslana hafa… lesa rest

11. september og „stríðið gegn hryðjuverkum“

 | Föstudagur 14. desember 2007 | Engar aths

Ég er orðinn nokkurn veginn sannfærður um að voðaverkin í New York 11. september voru innherjaverk úr bandarísku stjórnkerfi og leyniþjónustu. Þessi skoðun er útbreidd , einkum í Bandaríkjunum. Af hverju ræðum við hana þá ekki? Hin opinbera skýring á… lesa rest

Burt með hryðjuverkalögin

 | Mánudagur 10. desember 2007 | Engar aths

Sjálfstæði Íslands hefur stundum verið meira de jure en de facto; þ.e. á pappírnum erum við sjálfstætt ríki, en venjan í íslenskum stjórnmálum er oft í raun sú að herma eftir aðgerðum stærri ríkja og alþjóðastofnana í stefnumótun og lagasetningu.… lesa rest

Hugo Chavez: Alræmdur orðhákur eða vonarstjarna?

 | Föstudagur 7. desember 2007 | Engar aths

Á sunnudaginn var þjóðaratkvæðagreiðsla um nýja stjórnarskrá í Venezuela. Í henni beið Hugo Chavez sinn fyrsta ósigur síðan hann varð forseti árið 1999. Fréttaflutningur á Vesturlöndum hefur verið með endemum, eins og vænta mátti. Bandaríkin hafa lengi keypt stóran hluta… lesa rest