Rússneska byltingin 90 ára – áhrif hennar og afleiðingar
Árni Daníel Júlíusson | Föstudagur 30. nóvember 2007 | Engar aths
Þetta erindi var upphaflega flutt á fundi hjá Stefnu, félagi vinstrimanna á Akureyri, og birtist á vefritinu Kistunni þann 7. nóvember síðastliðinn:
Fátt eða ekkert sem gerst hefur sl. 90 ár skiptir jafn miklu máli og rússneska byltingin. Með henni hófst… lesa rest
Hórkarl við Háskóla Íslands
Elías Davíðsson | Miðvikudagur 28. nóvember 2007 | Engar aths
Þeir sem selja samvisku sína hæstbjóðanda eru samkvæmt mínum orðaforða hórkarlar/hórur. Slíkt fólk þrífst vel innan háskólasamfélagsins eins og dæmin sanna. Eitt slíkt er dæmi Róberts Spanós, sem kennir við lagadeild Háskóla Íslands.
Um daginn birtist í Morgunblaðinu grein eftir… lesa rest
Hvað er með Frökkum?
Vésteinn Valgarðsson | Mánudagur 26. nóvember 2007 | Engar aths
Frakkland hefur verið á öðrum endanum af verkföllum að undanförnu. Starfsfólk járnbrautanna lagði niður vinnu, og margir hópar opinberra starfsmanna fylgdu á eftir. Tugþúsundir hafa mótmælt á götum úti. Hvað er á seyði? Hvað er til ráða?
Sarkozy forseti vill… lesa rest
Ályktun I – um öryggismál Íslands
Vésteinn Valgarðsson | Mánudagur 26. nóvember 2007 | Engar aths
Eftirfarandi ályktun var samþykkt á landsfundi SHA í Friðarhúsi, laugardaginn 24. nóvember 2007 og birtist hér orðrétt:
Um öryggismál Íslands
Ýmsar goðsagnir hafa gufað upp á undanförnum misserum í kjölfar brotthvarfs bandaríska setuliðsins frá Miðnesheiði. Í fyrsta lagi hefur komið… lesa rest
Kennum trúarbragðafræði
Vésteinn Valgarðsson | Mánudagur 26. nóvember 2007 | Engar aths
Siðmennt sendi eftirfarandi fréttatilkynningu frá sér þann 17. nóvember síðastliðinn:
Fréttatilkynning: Kennum trúarbragðafræði
Hópur kristinna trúfélaga, þar á meðal þjóðkirkjan, sendi alþingismönnum og sveitastjórnarmönnum bréf 10. nóvember sl. þar sem farið er fram á að kristinfræðikennsla verði efld í grunnskólum… lesa rest
Ný miðnefnd SHA
Vésteinn Valgarðsson | Sunnudagur 25. nóvember 2007 | Engar aths
Í gær, laugardag, héldu Samtök hernaðarandstæðinga landsfund sinn. Ný miðnefnd var kjörin á honum. Hana skipa:
Aðalmenn: Erla Guðrún Gísladóttir, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Kristinn Schram, Júlía Margrét Einarsdóttir, Sigurður Flosason, Stefán Pálsson (formaður), Steinunn Rögnvaldsdóttir, Þorvaldur Þorvaldsson og Þórður Sveinsson… lesa rest
Kaupum ekkert dagurinn
Vésteinn Valgarðsson | Laugardagur 24. nóvember 2007 | Engar aths
Eins og flestum á að vera kunnugt er Kaupum ekkert dagurinn í dag.
Dagurinn hóf göngu sína fyrir tilstilli kanadísku hugsjónasamtakanna Adbusters og hafa samtökin ítrekað reynt að fá sjónvarpað auglýsingum af þessu tilefni.
Nú í ár var haft samband… lesa rest
Kaupum ekkert dagurinn er í dag!
Einar Rafn Þórhallsson | Laugardagur 24. nóvember 2007 | Engar aths
Jólin eru komin í Ikea! Auglýsingarnar eru byrjaðar að dynja á okkur neytendum, raunar byrjuðu þær fyrir mörgum vikum síðan, í október. Fremst í flokki voru Húsasmiðjan, Blómaval og auðvitað Ikea, en núna eru flestir að hefja baráttuna. Baráttuna um… lesa rest
Hver eru leikföng? Hvað er bara fyrir krakka?
Hrafn H. Malmquist | Miðvikudagur 21. nóvember 2007 | Engar aths
Undirritaður rak upp stór augu þegar hann frétti að opna ætti íslenska Toys „R“ Us búð. Þessi keðja er heimsfræg og teygir anga sína í flesta króka og kima jarðríkis. Jafnvel til Saúdi Arabíu, þar sem traðkað er á mannréttindum.… lesa rest
Jibbí, jólin koma!
Vésteinn Valgarðsson | Miðvikudagur 21. nóvember 2007 | Engar aths
Nú er gormánuður byrjaður og vetur hafinn, og þá hefja nokkur stórfyrirtæki sinn sígilda söng um að jólin séu að koma o.s.frv. Eins og vant er ríður IKEA á vaðið um það leyti sem krækiberin eru á hátindi þroska síns.… lesa rest

