Utanþingsstjórn & mótmæli

 | Föstudagur 29. október 2010 | 3 aths

Hrundið hefur verið af stað undirskriftarsöfnun þar sem skorað er á forseta Íslands að koma á utanþingsstjórn sem hefur það verkefni að leysa úr brýnustu vandamálum þjóðarinnar. Þ.e. skuldavanda heimilanna og vaxandi atvinnuleysi. Það eru tveir aðstandendur tunnumótmælanna sem settu… lesa rest

Ítalskur ríkissaksóknari vill þyngri dóm yfir fyrrverandi CIA-starfsmanni

 | Föstudagur 29. október 2010 | Engar aths

Ein alræmdasta hlið hins svonefnda stríðs gegn hryðjuverkum eru óvenjuleg framsöl, lesist ólöglegt mannrán (sjá 1984 e. Orwell). Í nóvember 2003 var Hassan Mustafa Osama Nasr rænt af hópi CIA-starfsmanna á götu úti í Mílanó í Ítalíu. Hann var fluttur… lesa rest

Útsendari lögreglunnar hugsanlega meðal aðgerðarsinna

 | Fimmtudagur 28. október 2010 | Engar aths

Aðgerðarsinnar í Bretlandi virðast hafa komið upp um útsendara lögreglunnar. Maðurinn, sem kallaði sig Mark Stone, kom víða við og starfaði, að sögn heimildamanna í Indymedia í Bretlandi, með mörgum grasrótarhópum í því skyni að veita lögreglunni upplýsingar um starfsemi þeirra. Enn… lesa rest

Hlutverk Ögmundararmsins

 | Fimmtudagur 28. október 2010 | Engar aths

Ísland er auðvaldsríki. Í slíku efnahagskerfi fylgir valdið auðnum, liggur hjá auðstéttinni. Síðustu tvo áratugi hefur það einkum safnast hjá fjármálavaldinu – innlendu sem erlendu. Ríkisvaldið þjónar þessu efnahagskerfi og ríkjandi auðsamsteypum – innlendum og erlendum. Þá breytir það litlu… lesa rest

Kvenréttindi á Íslandi

 | Þriðjudagur 26. október 2010 | 1 aths

Það er ekki svo fjarstæðukennt að Kvennafrídagurinn gæti orðið árviss og gleðilegur atburður. Hann yrði að vissu leyti á pari við Gay pride og er það nokkuð umhugsunarefni. Frjálshyggjupenninn trúir því blint að vondu spilltu kerfiskallarnir standi á bak við… lesa rest

Siðfræði skorts II: Um John Gray og J.G. Ballard

 | Mánudagur 25. október 2010 | Engar aths

Þessi grein er framhald af Siðfræði skorts I: Um John Gray og J.G. Ballard.
Í þeim skilningi er ekki úr vegi að minnast á starf skoðanabróðurs Grays, rithöfundarins J.G. Ballards sem lést nýlega, en hann deildi þeirri sannfæringu með Gray… lesa rest

Frjálshyggjuhugmyndafræðin enn við lýði hjá elítunni

 | Föstudagur 22. október 2010 | 1 aths

Sagt er frá því á fréttavef Vísis að söluferli Sjóvár sé á lokastigum. Sem kunnugt er fór þetta gamalgróna tryggingarfyrirtæki flatt á ólöglegum áhættufjárfestingum Werners-systkinanna. Spurningin er hins vegar hvort fyrirtækið sé á leið úr öskunni í eldinn. Sá maður… lesa rest

Lögregluáhlaup á hryðjuverkasamtök í Japan

 | Föstudagur 22. október 2010 | Engar aths

Á miðvikudeginum 20. október 2010 framkvæmdi japanska lögreglan 15 mismunandi áhlaup á húsnæði tengd Kakurokyo-hryðjuverkasamtökunum. Lögreglan í Japan er að undirbúa jarðveginn fyrir fund Efnahagssamvinnuráðs Asíu- og Kyrrahafsríkja (APEC) sem verður haldinn í Yokohama í Japan, vikuna 7-14. nóv.
Í… lesa rest

Siðfræði skorts I: Um John Gray og J.G. Ballard

 | Föstudagur 22. október 2010 | 1 aths

Árið 1907, við dagsbrún hinnar ógurlegu vargaldar sem sópaði burt gömlum stjórnkerfum og stofnunum tengdum bjartsýni og skýru stigveldi, kom franski verkfræðingurinn og stjórnspekingurinn Georges Sorel orðum að kenningu um efnahags- og félagslegar umbreytingar þar sem „félagslegar aðstæður mynda kerfi… lesa rest

Dulkóðunardúddarnir

 | Fimmtudagur 21. október 2010 | Engar aths

Veftímaritið Wired sem er eitt það vinsælasta á sviði upplýsingatækninnar og tengdum málefnum segir frá því hvernig hinar fjölmörgu undirstofnanir á sviði gagnnjósna í Bandaríkjunum reka á heimasíðum sínum krakkahorn með leikjum fyrir námsfús börn.

Þjóðaröryggistofnunin (NSA) býður upp á… lesa rest