Skýrsla um húsnæðisstefnu

 | Miðvikudagur 27. apríl 2011 | 1 aths

Samráðshópur um húsnæðisstefnu velferðarráðuneytisins, sem skipaður var í nóvember 2010, hefur skilað skýrslu með tillögum í húsnæðismálum, markmiðum í húsnæðisstefnu og tillögum um hvernig stjórnvöld geti náð þeim.… lesa rest

HH: Seðlabanki kanni NISK

 | Þriðjudagur 26. apríl 2011 | 1 aths

Hagsmunasamtök heimilanna skora á Seðlabanka Íslands til að gangast fyrir óháðri rannsókn á kostum og göllum þess að taka upp nýjan íslenskan gjaldmiðil (NISK).
Fram hafa komið hugmyndir í umræðunni um innleiðingu nýrrar íslenskrar krónu til leiðréttingar á innlendum skuldbindingum… lesa rest

Fundur um Líbíustríð

 | Föstudagur 8. apríl 2011 | Engar aths

Lárus Páll Birgisson (Lalli sjúkraliði) boðar til fundar í Friðarhúsi föstudaginn 8. apríl kl. 20 til að undibúa aðgerðir gegn stríðinu í Líbíu. Í fundarboði segir:
Íslensk stjórnvöld hafa ekkert lært af hryllilegum stríðsrekstri undanfarinna ára í Írak og Afganistan… lesa rest

Ályktun frá SHA vegna „loftrýmisgæslu“

 | Fimmtudagur 7. apríl 2011 | Engar aths

Samtök hernaðarandstæðinga lýsa vonbrigðum sínum með fréttir af því að hingað komi til lands kanadískar herþotur til svokallaðs loftrýmiseftirlits. Sagt hefur verið frá því í fréttum að flugsveit sú sem nú kemur til landsins, hafi verið kölluð til með skömmum… lesa rest

Ályktun Rauðs vettvangs um IceSave

 | Þriðjudagur 5. apríl 2011 | Engar aths

Íslenskur almenningur stofnaði ekki til IceSave-skulda og á ekki að borga þær. Fjármálaauðvaldið getur átt sínar skuldir sjálft. Almenningur á Íslandi og almenningur í Bretlandi og Hollandi ætti að berjast sameiginlega gegn sameiginlegum óvinum sínum í bönkum, ríkisstjórnum og öðrum… lesa rest

Ályktun Rauðs vettvangs um Líbíu

 | Þriðjudagur 29. mars 2011 | Engar aths

Rauður vettvangur fordæmir stríðsaðgerðir nokkurra stórvelda gegn Líbýu og krefst þess að íslensk stjórnvöld beiti sér á alþjóðavettvangi fyrir því að þeim linni. Ályktun Öryggisráðs SÞ um svokallað flugbann er í raun stríðsyfirlýsing, sem nokkur stórveldi telja sig geta notað… lesa rest

Viðtalasyrpa um IceSave

 | Þriðjudagur 29. mars 2011 | Engar aths

Athygli skal vakin á á seinni hluta viðtalaspyrpu  sem Lifandimynd.is tók upp fyrir Samstöðu þjóðar gegn Icesave. Myndbandið er að finna á heimasíðu samstöðuhópsins kjosum.is en slóðin að því er: http://www.kjosum.is/myndskeid
Viðtölin voru tekin upp á Austurvelli föstudaginn 11. mars… lesa rest

Parísarkommúnan 140 ára

 | Mánudagur 28. mars 2011 | Engar aths

Haustið 1870 gersigraði sameinaður her Prússlands og annarra þýskra ríkja franska herinn. Sjálfur Frakkakeisari, Napóleon III, var tekinn til fanga á vígvellinum ásamt 100.000 hermönnum, og Bismarck notaði sigurinn til að sameina þýsku ríkin í eitt keisaradæmi. Alþýða Parísarborgar sætti… lesa rest

Ályktun Íslandsdeildar Attac vegna loftárásanna á Líbíu

 | Mánudagur 28. mars 2011 | Engar aths

Attac samtökin fordæma stuðning íslenskra yfirvalda og alþingismanna við loftárásir svokallaðs *alþjóðasamfélags*, undir forystu Bandaríkjamanna, Breta og Frakka.

Engin upplýst umræða fór fram í utanríkismálanefnd Alþingis í aðdraganda ákvörðunarinnar, og má furðu sæta að engin þingmaður hafi krafist þess að… lesa rest

Líbíustríð fordæmt

 | Þriðjudagur 22. mars 2011 | Engar aths

Róstur fordæma stríðið gegn Líbíu í leiðara. Þar segir m.a.:
Frá byltingaröldu í Líbíu síðastliðnar vikur hafa fréttir verið þaðan tíðar. Okkur blöskrar. Fréttir frá einræðisríkinu Bahrein, blóðsúthellingar á almennum borgurum af hálfu þarlends hers ásamt leiguliðum frá Pakistan og… lesa rest