Útsendari lögreglunnar hugsanlega meðal aðgerðarsinna

Ritstjórn | Fimmtudagur 28. október 2010 | Engar aths

Aðgerðarsinnar í Bretlandi virðast hafa komið upp um útsendara lögreglunnar. Maðurinn, sem kallaði sig Mark Stone, kom víða við og starfaði, að sögn heimildamanna í Indymedia í Bretlandi, með mörgum grasrótarhópum í því skyni að veita lögreglunni upplýsingar um starfsemi þeirra. Enn á eftir að leggja fram óyggjandi sönnunargögn um þessar ásakanir, en heimildir geta þess að maðurinn hafi viðurkennt að hafa verið lögregluþjónn og að eftirgrennslan hafi sýnt að hann hafi haft þann starfa í raun. Hann hefur m.a. unnið með grasrótarhópum á Íslandi og þykir það til merkis um að leynilögregla Bretlands teygi anga sína víða. Slíkir útsendarar hafa, samkvæmt frétt frá the Guardian, verið starfandi í Bretlandi frá því á sjöunda áratug 20. aldarinnar. Aðgerðarsinnar hvetja bæði til varkárni gagnvart slíkum útsendurum, og um leið þess að bíða þess að óyggjandi sannanir komi fram, enda gæti einnig verið um að ræða falskar upplýsingar sem dreift er til að tvístra grasrótarhópum. (sjá frétt)

 Deila á Facebook

Athugasemd