Íbúum heils bæjar í Líbíu útrýmt
Jón Karl Stefánsson | Þriðjudagur 27. september 2011 | Engar aths
Gríðarleg ofbeldis- og morðherferð á sér nú stað í Líbíu þar sem hinir svokölluðu uppreisnarmenn, undir verndarvæng Nató, fara hamförum. Bærinn Tawergha, sem liggur sunnan við Misrata í Líbíu, hefur verið hreinsaður að fullu. Bærinn var að mestu byggður fólki sem hafði dökkan hörundslit og farandverkafólki frá nágrannaríkjum. Grunaðir fylgismenn Gaddafis, þ.e. nánast hver sem er, eru í mikilli hættu og ef fer fram sem horfir munu ofbeldissveitir þær sem nú ganga berserksgang fylla götur í Líbíu blóði. Þetta kemur fram í skýrslum Human Rights Watch.
Sjá nánar hér.
Athugasemd

