NATÓ týnir 500 vörubílum

Vésteinn Valgarðsson | Miðvikudagur 13. október 2010 | Engar aths

Birgðaflutningar Atlantshafsbandalagsins í gegn um Pakistan verða fyrir miklum skemmdarverkum og bandalagið tapar miklu magni af hergögnum og öðrum birgðum. Nú síðast „hurfu“ um 500 flutningabílar, sem fluttu olíu, mat, einkennisbúninga og aðrar birgðir fyrir hernámsyfirvöld í Afganistan, á leiðinni frá Port Qasim, í Karachi í Pakistan, norður til landamæranna og Kandahar. Pakistönsk yfirvöld segjast vera bjartsýn á að góssið komi í leitirnar. Daglega keyra að meðaltali um 100 vörubílar frá Pakistan til Afganistan í gegn um landamærabæinn Chaman. Þar og annars staðar í landamærahéruðum eru markaðir fullir af þýfi úr birgðaflutningum NATÓ.

Arbejderen greindi frá.

 Deila á Facebook

Athugasemd