vefrit um samfélagsmál

Nákvćmari leit

Hafđu samband: eggin(at)eggin.is

Átta tesur Prenta Rafpóstur
 
höfundur Vésteinn Valgarđsson, dags 01-09-2009 09:00

Ágústtesur þessar voru samdar og fluttar á flokksráðsfundi Vinstrihreyfingarinnar -- grænsframboðs á Hvolsvelli 28.-29. ágúst 2009.

Ríkisstjórnarseta skiptir miklu, en til eru mál sem veg of þungt til að eftirgjöf sé ásættanleg.

1. Sá sem vill ekki ganga í Evrópusambandið sækir hvorki um aðild að því né kýs flokk sem gerir það.

2. Sá sem vill stöðva stóriðjustefnu lætur hvorki álversframkvæmdir í Helguvík halda áfram óáreittar né kýs flokk sem gerir það.

3. Sá sem lætur sér annt um jafnrétti kynjanna sker ekki niður kvennastörf á sama tíma og hann skapar karlastörf.

4. Sá sem trúir hægrimönnum trúir að kreppan stafi af siðferðisbresti, klaufaskap eða kynhormónum, en sósíalisti veit að kreppa er innbyggð í auðvaldsskipulagið og er hvort háð öðru. Leiðin út úr kreppunni liggur út úr auðvaldsskipulaginu.

5. Sá sem heldur með fjármálaauðvaldinu lætur skattborgara greiða  spilaskuldir þess og einkavæðir bankana aftur, en sá sem vill sjá hag almennings borgið hlífir heimilunum við óréttlátri eignaupptöku.

6. Sá sem hlítir ráðum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins byggir ekki upp neitt „norrænt velferðar“-neitt-neitt, heldur sker niður í opinberri þjónustu.

7. Sá sem sættir sig ekki við þjóðfélagsástandið byrjar á að kjósa umbótaflokk, en dugi það ekki stendur valið milli landflótta og byltingar.

8. Sá sem er í vinstristjórn framfylgir vinstristefnu, en stjórn sem framfylgir hægristefnu er ekki vinstristjórn. Hugsjónir eru ekki skiptimynt fyrir ráðherrastóla og hótanir um stjórnarslit koma ekki í stað endurgjalds fyrir eðlilegar málamiðlanir.


Ummćli (0) RSS feed comment

Engin ummćli hafa borist

Skrifa ummćli



mXcomment 1.0.7 © 2007-2010 - visualclinic.fr
License Creative Commons - Some rights reserved