|
![]() |
![]() |
| Kaupum ekkert dagurinn er í dag! |
|
|
Jólin eru komin í Ikea! Auglýsingarnar eru byrjaðar að dynja á okkur neytendum, raunar byrjuðu þær fyrir Á tímum einnota umbúða, rafmagnstækja sem endast í nokkur ár og fara svo á haugana, á tímum óendurvinnalegra plastleikfanga, þá höfum við möguleikann á að staldra við og hugsa hvað peningarnir, vinnan og tíminn eru að fara í. Er mikilvægara að kaupa nýjan gsm-síma en að eiga frítíma með sjálfum sér, vinum eða fjölskyldu? Þegar við eyðum peningum erum við jafnframt að eyða frítíma okkar, frítíma sem upprunalega fór í vinnu.
Það er alltaf erfitt að byrja, það er erfitt að skera sig úr fjöldanum. Hversvegna ættum við að kaupa minna á meðan aðrir halda áfram neysluæði sínu út í hið óendanlega? Til þess byrjaði Kaupum ekkert dagurinn. Kaupum ekkert dagurinn er haldinn ár hvert – Kaupum ekkert dagurinn er ekki til þess að breyta öllum í fábrotna munka og nunnur sem neyta aðeins þess sem þarf til að lifa af. Öðru nær, hann er til þess að við gerum okkur grein fyrir því hvað það er sem við kaupum. Það er ekki það sama að kaupa hamborgara frá McDonald’s eða frá Nonnabita, það er ekki eins að kaupa kók eða lífrænt kóla, það er ekki eins að kaupa Merrild-kaffi og að kaupa fair trade-kaffi. Allt sem við gerum skiptir máli, gríðarlegu máli, og kaupum ekkert dagurinn á að minna okkur á þá staðreynd. Það viljafæst stórfyrirtæki að við gerum. Kaupum ekkert laugardaginn 24. nóvember 2007!
|
Engin ummćli hafa borist