Um Eggin
Stefna
Vefritið Eggin er vettvangur fyrir rökfasta umræðu um pólitík og samfélagsmál. Tilgangur þess er að leggja sitt af mörkum í baráttunni fyrir heimi án stéttaskiptingar, misréttis og annars óréttlætis. Eggin þiggur hvorki né gefur flokkslínu og er óháð stjórnmálahreyfingum. Við munum segja það sem við teljum réttast, af svo mikilli kurteisi eða hispursleysi sem okkur þykir hæfa umræðuefninu.
Egginni er ætlað að leggja orð frjálslyndrar, stéttvísrar og byltingarsinnaðrar félagshyggju, mannréttinda, réttlætis og lýðræðis á vogarskálarnar í baráttunni fyrir betra Íslandi og betri heimi. Við viljum vinna gegn þeirri pólitísku firringu að stjórnmál séu fyrir stjórnmálamenn, kerfið fyrir embættismenn og efnahagskerfið fyrir auðjöfra. Eggin hafnar því stjórnlyndi og auðvaldshyggju, stigveldi og stéttaskiptingu, átrúnaðargoðum og kennivaldi, skipulögðum trúarbrögðum og sápuóperum, arðráni og okri, rányrkju og mengun, heimsvaldastefnu og stríðsrekstri. Eina aflið sem getur svipt yfirstéttina forréttindastöðu sinni og komið völdunum raunverulega í hendurnar á almenningi er stéttvís samtakamáttur almennings sjálfs.
Höfuðfyrirstaða þess á okkar tímum, að mannkynið geti lifað í friði og farsæld, er auðvaldsskipulagið og afnám þess er höfuðverkefnið sem núlifandi kynslóðir standa frammi fyrir. Við höfnum öllu sem tefur fyrir afnámi auðvaldsskipulagsins, svo sem innbyrðis ójafnrétti meðal vinnandi fólks eftir kyni eða kynþætti, og við styðjum allt sem flýtir fyrir afnámi þess, svo sem vitundarvakningu almennings og félagslegar lausnir á félagslegum vandamálum.
Við munum bæði birta frumsamið og aðfengið efni, vísa á athyglisvert efni á öðrum vefsíðum og benda á athyglisverða viðburði. Skrif verða auðkennd höfundi eða ritstjórn eftir því sem við á. Ritstjórn skipa: Hrafn H. Malmquist, Jón Karl Stefánsson og Vésteinn Valgarðsson, og bera sameiginlega ábyrgð á síðunni í heild. Þeim til fulltingis er fólk sem tilheyrir ritnefnd og ber ekki sérstaka ábyrgð á öðru en eigin skrifum.
Tæknidrasl
Eggin notast við hið ókeypis WordPress umsýslukerfi og er með uppsett töluvert breytta útgáfu af Elements of SEO-sniðinu sem Drew Stauffer bjó til hjá Alibi Productions. Eggin notast einnig við ýmsar viðbætur við WordPress: amr-events, Contact Form 7, Advanced Excerpt, Category pagination fix, Maintenance Mode, Search Everything og WP-Paginate.

