Sjálfboðaliðastörf í Palestínu 2012 – opinn fundur í síðdeginu

Ritstjórn | Fimmtudagur 12. janúar 2012 | Engar aths

Frá árinu 2002 hafa á fimmta tug sjálfboðaliða lagt sitt af mörkum með milligöngu Félagsins Ísland PalestínaÞörf er á fleirum. Kynningarfundur á sjálfboðaliðastarfi félagsins fer fram fimmtudaginn 12. janúar í fundarsal Reykjavíkur Akademíunnar, Hringbraut 121, 4. hæð, kl. 17:00.

Sjálfboðaliðar á vegum félagsins hafa komið að skólastarfi og fræðslu í flóttamannabúðum, aðstoðað heimamenn við að skipuleggja friðsöm mótmæli gegn hernámi og aðskilnaðarmúr, liðsinnt á heilsugæslu og staðið vörð um réttindi hinnar kúguðu þjóðar með einum og öðrum hætti. Á árinu 2012 er fyrirhugað að fjölga samstarfsaðilum í Palestínu og koma á legg skyndihjálparverkefni í flóttamannabúðum. 

Hvað svo sem sjálfboðaliði tekur sér fyrir hendur, hefur vera hans á Vesturbakkanum áhrif. Hermenn hika við hrottaskap í viðurvist Vesturlandabúa. Heimamenn skynja að umheiminum stendur ekki fullkomlega á sama. „Gríðarlega gestrisnir,“ eru orð sem sjálfboðaliðar hafa notað til lýsa kynnum sínum af Palestínumönnum þegar heim er komið og við tekur síðasta en ekki sísta hlið sjálfboðastarfsins: Að vera til frásagnar.

Kynningarfundur á sjálfboðaliðastarfi í Palestínu 2012
Fimmtudagurinn 12. janúar kl 17.00
Fundarsal Reykjavíkur Akademíunar

Hringbraut 121, 4. hæð
Reykjavík, Iceland

Áætlað er að kynningin taki um 30 mínútur. Nánari upplýsingar veitir Egill Bjarnason, egillbjarnason@gmail.com, s.865 6284.

Fundurinn er öllum opinn og mætingu fylgja engar skuldbindingar.

– — –
Þessi auglýsing er tekin orðrétt af póstlista Félagsins Ísland-Palestína.

 Deila á Facebook

Athugasemd